Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 1390 — 360. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um störf þingmanna á vegum framkvæmdarvaldsins.
1. Hvaða þingmenn hafa setið í nefndum, ráðum, framkvæmdahópum eða öðrum hópum á vegum ráðuneytisins ár hvert frá árinu 2006?
Nefnd og þingmenn | Launað | Afurð | Tímabil |
Verkefnastjórn um heilsufar kvenna | |||
Jónína Bjartmarz | Nei | Skilaði áliti til ráðherra | 2001–2008 |
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir | Nei | Skilaði áliti til ráðherra | 2001–2008 |
Úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir | |||
Guðrún Ögmundsdóttir | Já | Úrskurðir | 2007–2021 |
Nefnd til þess að gera tillögur um verksvið Landspítala – háskólasjúkrahúss og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri | |||
Jónína Bjartmarz | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2003–2009 |
Nefnd um tilflutning á verkefnum á sviði heilbrigðismála frá ríki til sveitarfélaga | |||
Sæunn Stefánsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2003–2009 |
Nefnd til þess að gera tillögur til ráðherra um hvernig endurskilgreina megi verksvið Landspítala – háskólasjúkrahúss og Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri með tilliti til breyttra þjóðfélagsaðstæðna | |||
Drífa Hjartardóttir | Nei | Skýrsla | 2003–2006 |
Margrét Frímannsdóttir | Nei | Skýrsla | 2003–2006 |
Nefnd til að endurskoða lög um heilbrigðisþjónustu, nr. 97/1990 | |||
Ásta Möller | Nei | Liggur ekki fyrir | 2003–2007 |
Jónína Bjartmarz | Nei | Liggur ekki fyrir | 2003–2007 |
Margrét Frímannsdóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2003–2007 |
Samráðsnefnd til að semja drög að lyfjastefnu og nýjum lyfjalögum | |||
Ásta Möller | Nei | Skýrsla | 2004–2007 |
Sæunn Stefánsdóttir | Nei | Skýrsla | 2004–2007 |
Nefnd um heildarendurskoðun laga um málefni aldraðra | |||
Jón Kristjánsson | Já | Skilaði áliti til ráðherra | 2007 |
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra skv. 4. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra | |||
Ágúst Ólafur Ágústsson | Nei | Skilaði áliti til ráðherra | 2008–2009 |
Ásta Möller | Nei | Skilaði áliti til ráðherra | 2007–2009 |
Stjórn Tryggingastofnunar ríkisins, skv. 3. gr. laga um almannatryggingar, nr. 100/2007 | |||
Kristinn H. Gunnarsson | Nei | Minnisblað til ráðherra | 2007 |
Karl V. Matthíasson | Nei | Minnisblað til ráðherra | 2007 |
Nefnd um fasteignir, nýbyggingar og aðstöðu heilbrigðisstofnana | |||
Árni Þór Sigurðsson | Nei | Greinargerð til ráðherra | 2007–2009 |
Nefnd til að gera tillögur að réttlátari, einfaldari og gagnsærri þátttöku einstaklinga í kostnaði vegna lyfja og annarrar heilbrigðisþjónustu með það að leiðarljósi að verja einstaklinga gegn of háum kostnaði | |||
Pétur H. Blöndal | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Ásta R. Jóhannesdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Árni Páll Árnason | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Ragnheiður Ríkharðsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Kristinn H. Gunnarsson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Ögmundur Jónasson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Þuríður Backman | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2007–2009 |
Nefnd til að meta hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana skv. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu | |||
Guðfinna S. Bjarnadóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2008–2012 |
Starfsmenntaráð | |||
Þórunn Sveinbjarnardóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2008–2010 |
Samráðsnefnd um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga | |||
Helgi Hjörvar | Nei | Liggur ekki fyrir | 2009– |
Þverpólitískur samráðshópur um framkvæmd laga nr. 107/2009 | |||
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Unnur Brá Konráðsdóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Guðmundur Steingrímsson | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Lilja Mósesdóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Þráinn Bertelsson | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Samráðshópur um húsnæðisstefnu | |||
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2010–2011 |
Eygló Harðardóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2010–2011 |
Samráðsnefnd um málefni fatlaðs fólks | |||
Jónína Rós Guðmundsdóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010–2013 |
Starfshópur um endurskoðun almannatryggingalaga | |||
Helgi Hjörvar | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2013 |
Jónína Rós Guðmundsdóttir | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2013 |
Pétur H. Blöndal | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2013 |
Guðmundur Steingrímsson | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2012 |
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2012 |
Oddný G. Harðardóttir | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011–2012 |
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Skilaði tillögum til ráðherra | 2011 |
Verkefnisstjórn um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) | |||
Guðmundur Steingrímsson | Nei | Skilaði skilagrein til ráðherra | 2011–2013 |
Vinnuhópur um húsnæðisbætur | |||
Lúðvík Geirsson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2011–2012 |
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2011 |
Vinnuhópur um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs | |||
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Engin afurð | 2011–2012 |
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir | Nei | Engin afurð | 2011–2012 |
Samráðshópur ríkis og sveitarfélaga um innleiðingu húsnæðisbótakerfis | |||
Lúðvík Geirsson | Nei | Minnisblað til ráðherra | 2012–2013 |
Nefnd til að kanna hvort hægt sé að fella læknis-, lyfja-, rannsóknar-, sjúkraþjálfunar- og annan heilbrigðiskostnað undir eitt niðurgreiðslu- og afsláttarfyrirkomulag | |||
Katrín Júlíusdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2015 |
Ragnheiður Ríkharðsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2015 |
Pétur H. Blöndal | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2015 |
Verkefnisstjórn um framtíðarskipan húsnæðismála | |||
Guðlaugur Þór Þórðarson | Nei | Skýrsla | 2013–2014 |
Elsa Lára Arnardóttir | Nei | Skýrsla | 2013–2014 |
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Skýrsla | 2013–2014 |
Ásmundur Friðriksson | Nei | Skýrsla | 2013 |
Samvinnuhópur um framtíðarskipan húsnæðismála | |||
Guðbjartur Hannesson | Nei | Skýrsla | 2013–2014 |
Elín Hirst | Nei | Skýrsla | 2013–2014 |
Nefnd um endurskoðun almannatryggingalaga | |||
Þorsteinn Sæmundsson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Þórunn Egilsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Vilhjálmur Bjarnason | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Páll Valur Björnsson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Helgi Hjörvar | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Sigrún Magnúsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Elín Hirst | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Björt Ólafsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Steinunn Þóra Árnadóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2016 |
Pétur H. Blöndal | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2015 |
Svandís Svavarsdóttir | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2013–2015 |
Starfshópur um endurskoðun laga um málefni fatlaðs fólks og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga | |||
Willum Þór Þórsson | Nei | Tvenn drög að lagafrumvörpum | 2014–2016 |
Nefnd um málefni hinsegin fólks | |||
Ragnheiður Ríkharðsdóttir | Nei | Liggur ekki fyrir | 2010 |
Vinnuhópur um innleiðingu á tillögum um þjónustustýringu á landsbyggðinni sem er hluti verkefnisins „Þjónustustýring – innleiðing á landsvísu“ | |||
Guðjón Brjánsson | Nei | Liggur ekki fyrir | 2014 |
Starfshópur um mótun stefnu til að draga úr skaðlegum afleiðingum og hliðarverkunum vímuefnaneyslu, til aðstoðar og verndar neytendum efnanna og félagslegum réttindum þeirra, aðstandendum þeirra og samfélaginu í heild | |||
Helgi Hrafn Gunnarsson | Nei | Skýrsla til ráðherra | 2014–2016 |
Starfshópur um fjölgun líffæragjafa | |||
Silja Dögg Gunnarsdóttir | Nei | Tillögur til ráðherra | 2014–2015 |
Páll Valur Björnsson | Nei | Tillögur til ráðherra | |
Nefnd til að vinna að umbótum í lyfjamálum | |||
Brynjar Níelsson | Nei | Drög að frumvarpi til nýrra lyfjalaga | 2015–2016 |
Nefnd um mótun tillögu að vinnuverndarstefnu og skipulagi vinnuverndarmála hér á landi | |||
Steinunn Þóra Árnadóttir | Nei | Nefndin er að enn að störfum | 2016 |
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra | |||
Vigdís Hauksdóttir | Nei | Skilar árlega tillögum til ráðherra um framlög úr framkvæmdasjóði | 2014–2016 |
Guðlaugur Þór Þórðarson | Nei | Skilar árlega tillögum til ráðherra um framlög úr framkvæmdasjóði | 2014–2016 |
Stjórn Íbúðalánasjóðs | |||
Dagný Jónsdóttir | Nei | Stjórnarseta | 2007–2011 |
Jóhann Ársælsson | Nei | Stjórnarseta | 2007–2011 |
Stjórnarnefnd um málefni fatlaðra | |||
Birkir J. Jónsson | Nei | Stjórnarnefnd | 2003–2007 |
Stjórn Tryggingasjóðs | |||
Birkir J. Jónsson | Nei | Stjórnarseta | 2003–2007 |
Verkefnisstjórn vegna flutnings málefna aldraðra og almannatrygginga frá heilbrigðisráðuneytinu til félagsmálaráðuneytisins 1. janúar 2008 | |||
Ragnheiður Elín Árnadóttir | Nei | Tillögur til ráðherra | 2007–2008 |
Nefnd um endurskoðun efnis laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla | |||
Bjarni Benediktsson | Nei | Lagafrumvarp | 2006 |
Ásta Möller | Nei | Lagafrumvarp | 2006 |
Mörður Árnason | Nei | Lagafrumvarp | 2006 |
Starfshópur til að skipuleggja þverpólitískar aðgerðir til að jafna hlut kynjanna við næstu alþingiskosningar sem fyrirhugaðar eru vorið 2007 | |||
Valdimar Leó Friðriksson | Nei | Skýrsla | 2006–2007 |
Dagný Jónsdóttir | Nei | Skýrsla | 2006–2007 |
Pétur H. Blöndal | Nei | Skýrsla | 2006–2007 |
Katrín Júlíusdóttir | Nei | Skýrsla | 2006–2007 |
Starfshópur um efni tilskipana Evrópusambandsins um bann við mismunun með hliðsjón af aðstæðum á íslenskum vinnumarkaði | |||
Helgi Hjörvar | Nei | Tillögur til ráðherra | 2007 |
Birgir Ármannsson | Nei | Tillögur til ráðherra | 2007 |
Verkefnisstjórn vegna framkvæmdaáætlunar yfir þjónustu við geðfatlað fólk | |||
Dagný Jónsdóttir | Já | Tillögur til ráðherra | 2005–2007 |
Sæunn Stefánsdóttir | Nei | Tillögur til ráðherra | 2006–2007 |
Framkvæmdastjórn með stjórn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna | |||
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir | Nei | Skýrsla | 2008–2009 |
Stjórnarnefnd málefna fatlaðra | |||
Gunnar Svavarsson | Já | Greinargerð til ráðherra | 2007–2011 |
Nefnd til að móta tillögur að lausnum á þeim húsnæðisvanda sem skapast hefur meðal annars vegna hækkunar fasteignaverðs og húsaleigu á síðastliðnum árum | |||
Árni Páll Árnason | Nei | Tillögur til ráðherra | 2007–2008 |
Nefnd um húsnæðismál | |||
Árni Páll Árnason | Nei | Tillögur til ráðherra | 2008 |
Nefnd um stöðu einstæðra og forsjárlausra foreldra og réttarstöðu barna þeirra | |||
Ágúst Ólafur Ágústsson | Nei | Tillögur til ráðherra | 2007–2008 |
Starfshópur um aðgerðaáætlun til að sporna gegn fátækt og treysta öryggisnet velferðarkerfisins | |||
Þórunn Sveinbjarnardóttir | Nei | Drög að aðgerðaáætlun | 2008 |
Nefnd um hvort lög og reglugerðir uppfylli kröfur sem lagðar eru á þau ríki sem fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks með fötlun sem undirritaður var af hálfu Íslands 30. mars 2008 | |||
Helgi Hjörvar | Nei | Tillögur til ráðherra | 2008 |
Nefnd um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga á sviði þjónustu við aldraða | |||
Ellert B. Schram | Nei | Tillögur til verkefnisstjórnar | 2008 |
Flóttamannanefnd | |||
Guðrún Ögmundsdóttir | Já | Undirbúningur móttöku flóttamanna og dvalarleyfi af mannúðarástæðum | 2007–2009 |
2. Hverjar þessara nefnda voru launaðar og hver voru árleg laun hvers þingmanns?
Leitað var til Fjársýslu ríkisins eftir upplýsingum um greiðslur til starfandi þingmanna. Vísað er til töflu í svari við 1. tölul. en samkvæmt þeim upplýsingum voru greiðslur til þingmanna eftirfarandi:
Guðrún Ögmundsdóttir sat í úrskurðarnefnd um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Árið 2007 fékk hún greiddar 543.000 kr. fyrir setu sína í þeirri nefnd. Um er að ræða nefnd sem úrskurðar á grundvelli laga nr. 25/1975. Guðrún hefur setið í þeirri nefnd til fjölda ára og situr þar enn, en nú stendur yfir endurskoðun á lögunum.
Guðrún Ögmundsdóttir sat í flóttamannanefnd 2007–2009 og fékk greiddar 246.402 kr. árið 2007 fyrir setu sína í þeirri nefnd, en ekki var greitt fyrir önnur ár.
Jón Kristjánsson sat í nefnd um heildarendurskoðun laga um málefni aldraðra árið 2007 og fékk greiddar 133.470 kr. fyrir setu sína í þeirri nefnd.
Dagný Jónsdóttir sat í nefnd um verkefnisstjórn vegna framkvæmdaáætlunar yfir þjónustu við geðfatlað fólk 2005–2007 og fékk ekki greitt fyrir setu árin 2005 og 2006 en 323.075 kr. fyrir setu árið 2007.
Gunnar Svavarsson sat í stjórnarnefnd málefna fatlaðra 2007–2011. Árið 2007 fékk hann greiddar 136.890 kr., árið 2008 fékk hann greiddar 350.604 kr. og árið 2009 fékk hann greiddar 210.924 kr. Hætt var að greiða fyrir setu í nefndinni haustið 2009.
3. Hvað má ætla að þingmenn hafi lagt mikla vinnu í tímum talið í störf fyrir nefndina ár hvert?
Tímaskráningar eru ekki fyrirliggjandi varðandi umfang og vinnu þingmanna sem komið hafa að nefndarstarfi og vinnuhópum, og því er ekki unnt að leggja mat á vinnuframlag þeirra.
4. Hafa þingmenn fengið laun fyrir aðra vinnu á vegum ráðuneytisins? Ef svo er, fyrir hvað og hvenær?
Leitað var til Fjársýslu ríkisins eftir upplýsingum um greiðslur til starfandi þingmanna, sbr. svar við 2. tölul. Samkvæmt þeim upplýsingum voru engar greiðslur til sitjandi þingmanna fyrir aðra vinnu á vegum ráðuneytisins á þessum árum.
5. Hafa þingmenn unnið ólaunaða vinnu við verkefni eða nefndastörf á vegum ráðuneytisins frá árinu 2006, og ef svo er, hvaða?
Vísað er til töflu í svari við 1. tölul. fyrirspurnar þessarar.
6. Hafa þingmenn fengið laun sem verktakar frá ráðuneytinu frá árinu 2006 og ef svo er, fyrir hvaða verkefni og hver var fjárhæð umbunar fyrir það?
Leitað var til Fjársýslu ríkisins eftir upplýsingum um greiðslur til starfandi þingmanna, sbr. svar við 2. tölul. Samkvæmt þeim upplýsingum voru engar greiðslur til sitjandi þingmanna fyrir aðra vinnu á vegum ráðuneytisins á þessum árum.
7. Hvaða „afurð“ skilaði hver nefnd sem þingmaður átti sæti í af sér í lok starfstíma nefndarinnar og hvert var henni skilað?
Vísað er til töflu í svari við 1. tölul. fyrirspurnar þessarar.
8. Hvaða reglur hefur ráðuneytið sett um setu þingmanna í nefndum á vegum ráðuneytisins?
Ráðuneytið hefur ekki sett sérstakar reglur um setu þingmanna í nefndum á vegum þess en minna má á að við skipun þess í nefndir er ávallt horft til 15. gr. laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, um setu í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera.